Mánudagur, 26. febrúar 2007
Skúbb dagsins
Þá er helgin liðin og fór hún vel fram á mínu heimili. Engin ölvun eða slagsmál. Héldum upp á 3 ára afmæli dótturinnar um helgina þó hún eigi ekki afmæli fyrr en í næsta mánuði. En af því við vorum að fara að halda upp á barnaafmæli fórum við í Bónus fyrir helgina og þurftum meðal annars að kaupa gosdrykki. Þegar maður kemur inn í verslunina í Mosó blasir við manni tilboð. Kippa af 2 lítra Pepsi. Borgar fyrir fjórar færð sex. Ekkert hins vegar merkt hvað þetta kostar. Bara að þú eigir að fá tvær fríar ef þú kaupir fjórar. Við spurðum því hvað maður þyrfti að borga. Kippan kostaði yfir 600 krónur. Sem gerir rúmar 100 krónur per flösku miðað við tilboðið. Miðað við að borga fyrir fjórar þá má gera ráð fyrir að stök flaska kosti yfir 150 krónur. Við ákváðum að bíða með þetta og athuga hvað stök flaska kostaði, þá kostaði hún 98 krónur. Sem sagt 6 stykki á undir 600 ef þú kaupir þetta stakt og sleppir tilboðinu. Hvar er þá sparnaðurinn.
Nýjustu færslur
- 24.4.2008 Heimskyr komin í blöðin
- 23.4.2008 Hey ertu komin
- 21.4.2008 Snilld komin út
- 17.4.2008 Til hamingju
- 16.4.2008 Heimskyr
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónlistarspilari
Spurt er
Er Heimskyr besta hljómsveitin
Athugasemdir
þetta er sláandi, en það er samt auðveldara að kaupa kippu, þá tekur maður hana upp og þarf ekki að nota poka undir hana - sparar 15 krónur á því og svo hlítur einhver kostnaður að reiknast á það að setja plast utanum kippuna og merkja að það séu 6 fyrir 4
Sverrir Þorleifsson, 26.2.2007 kl. 11:25
Sendu nafnlaust bréf og bentu á þetta
Þórdís (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 23:07
Hahahaha, þetta eru bara svona miklir grínarar þarn í Mosó.
Kv. SigfúsSig.
Sigfús Sigurþórsson., 2.3.2007 kl. 23:12
Sæll Ragnar, þú færð ekkert komment frá mér um þessi skrif þín hér að ofan, heldur vildi ég vera fyrst til að óska þér og þinni konu til hamingju með litla prinsinn sem kom í heiminn áðan. Til hamingju með að vera búin að uppfylla skilyrði Vinstri grænna um jafnan kynjakvóta. Loksins komið jafnvægi á heimilinu
Óska ykkur alls hins besta. Þórey Dögg og fjölsk.
Knúsaðu Soffíu þína frá mér.
Þórey Dögg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 7.3.2007 kl. 12:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.