Þriðjudagur, 27. nóvember 2007
Til hamingju Ísland
Óska Íslendingum til hamingju með þessa útkomu. Það er gott að búa á Íslandi. Auðvitað eiga Íslendingar að koma að þróunaraðstoð og vissulega má gera betur í þeim málaflokki. Það þarf þó hver og einn að gera upp við sig hvað hann getur lagt af mörkum og betra er að það sé í gegnum einstaklingsframtakið frekar en að ríkið taki pening af fólki til að gefa öðrum. Einnig varðandi þessar loftlagsbreytingar, þá verður hver og einn að hugsa hvað hann getur gert frekar en að bíða eftir því að stjórnmálamenn segi þeim hvað á að gera. Vissulega má skattleggja mengun því þetta loftið eru sameiginleg gæði og þeir sem ganga á þau eiga að borga.
![]() |
Forréttindi að búa á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 24.4.2008 Heimskyr komin í blöðin
- 23.4.2008 Hey ertu komin
- 21.4.2008 Snilld komin út
- 17.4.2008 Til hamingju
- 16.4.2008 Heimskyr
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónlistarspilari
Spurt er
Er Heimskyr besta hljómsveitin
Athugasemdir
Ég tek undir það af eigin reynslu að það eru forréttindi að búa á íslandi, því ég bjó 30 ár í evrópu og flutti heim í fyrra. Það eru kostir og gallar allstaðar en gallarnir hér eru enn í lágmarki. Ég held að margir hérlendis geri sér enga grein fyrir mjög mörgum kostum sem þetta land býr yfir. T.d. er rafmagn og hiti 5 sinnum ódýrara hér á landi en í þýskalandi. Samt sparaði ég hvortveggja eins og ég gat í þýskalandi, en hér er ég með öll ljós kveikt í skammdeginu og hitann á fullu. Ég nýt þess að þurfa ekki að pæla í því hvort ég megi nota vatnið í eldhúsinu þó að einhver sé í sturtu, því hér gengur hvortveggja í einu. Eins nýt ég þess að fara daglega í BAÐ, vel heitt vatn :) og það setur mig ekki á hausinn!!! Svona gæti ég haldið áfram í allann dag, en það er annað sem þessi þjóð er ekki búin að fatta. Við ERUM þróunnarþjóð í vissum skilningi, og ættum kanski að styrkja þetta þjóðfélag, meðvituð um ýmislegt sem þarf að bæta hérlendis. Fólk sem gegnir miklum ábyrgðastöðum eins og t.d. kennarar og hjúkrunarfólk, er hér á svívirðilega lágum launum. Hvernig væri að stofna þróunarsjóð fyrir þetta góða fólk svo það geti unnið fyrir mannsæmandi launum. Og sjóð sem hægt væri að nota til að undirbúa viðkvæmt landið undir 1.000.000 ferðamenn á ári. Það er ekki langt í það. Þurfum við ekki bara (eins og Bush) að líta okkur nær? En burtséð frá öllum göllum finnst mér best að búa hér
anna ragnhildur (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 15:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.